þriðjudagur, 12. júní 2007
Folöld og framkvæmdir
Það var heilmikið húllumhæ á Hamarsheiði um helgina. Ég, pabbi, Edda Guðrún og Hildur Vaka komum á föstudagskvöldið og Silli, Sveinn og Jóhann Gylfi komu úr Steinsholti til að hjálpa til við að reka hrossin úr túnunum. Á laugardeginum kom Silli að bera á túnin og ég aðstoðaði við það. Seinni partinn komu svo Valdi og Helga með barnabörnin af Nesbalanum og slegið var um hamborgaraveislu. Ég eltist við strokna hesta allt kvöldið á meðan liðið slakaði á í heita pottinum. Á sunnudaginn komu síðan fleiri úr tengdafjölskyldunni í grillað lambalæri og með því. Mamma og pabbi komu - mamma til að setja niður kartöflur og pabbi til að gera við girðingar sem höfðu bilað. Arnar, Ýr og Hnikarr Örn komu líka. Við fjölmenntum svo að skoða folöldin og almennt þóttu þau mikil krútt. Gígjusonurinn er þó mun glæsilegri en sá undan Brá.
föstudagur, 18. maí 2007
Framkvæmdir í vikunni
Við feðgarnir fórum ásamt Ingvari austur á miðvikudaginn til að sinna viðhaldi á girðingum. Veðráttan aftraði því að við treystum vegunum inn landið að vestanverðu og því var ákveðið að sinna ýmsum verkefnum heima við. Við tengdum rafmagnið frá rafstöðinni í gegnum vegginn og færðum hana af gólfinu þar sem hún hefur legið sl. mánuði. Eins festum við stöðina tryggilegar á vegginn. Síðan var farið á hestbak og útjörðin skoðuð lítið eitt. Það er svolítið í að hagar verði tilbúnir innan túna og því ekkert aðhafst í að skilja hrossahópinn sundur í þetta skiptið. Í dag fórum við síðan með rusl úr fjósinu niður í Árnes og ég lagaði túnveginn eins og hægt var. Hryggurinn í honum var orðinn farartálmi fyrir allt annað en traktorinn og brúin yfir gilið orðin frekar aum. Það er hins vegar ljóst að það þarf eitthvað efni í veginn eigi hann að verða fær á veturna og við reynum að bæta úr því í sumar.
sunnudagur, 25. mars 2007
Nýjar myndir
Ég átti alltaf eftir að setja myndirnar frá síðustu helgi inn en þær eru komnar núna. Njótið.
sunnudagur, 18. mars 2007
Hörku, djöfuls helgi!
Við skötuhjúin erum tiltölulega nýlent hérna heima eftir góða helgi á Hamarsheiðinni. Fórum austur á föstudagseftirmiðdag með mömmu og Andreas en pabbi hafði farið með Stúdent á fimmtudaginn. Það var frekar snjóþungt fyrir austan og það hélt áfram að snjóa eftir að við komum þangað. Það var þó enn fært upp heimreiðina þegar við mættum en heilmikill snjór í henni samt. Mamma eldaði ofan í liðið á meðan ég fór og setti skófluna á Landini-inn og mokaði aðeins. Síðan átum við fyrirtaks búlgarskar kjötbollur og síðan var bara slakað á eftir matinn.
Í gærmorgunn vöknuðum við síðan og drifum okkur í níræðisafmæli fjölskyldunnar á Brúnum því Guðni varð fertugur 3. janúar, Lilja verður fertug á morgun og Ágúst verður 10 ára í júní. Það var frábært hádegisverðarhlaðborð með öllu tilheyrandi og mikið fjölmenni og gaman. Veislan stóð víst langt fram eftir kvöldi en við drifum okkur í skyldustörfin, ég að moka meira því það snjóaði heilmikið aðfaranótt laugardagsins og á laugardagsmorgunn. Ég hreinsaði innkeyrsluna og heimreiðina. Síðan fórum við feðgarnir og gáfum.
Í gærkvöld komu svo Eiki, Guðný og Helga Kristín í mat á Hamarsheiðina. Ég grillaði bjórkjúkling og Edda sá um meðlætið. Heppnaðist ágætlega og við sátum eitthvað fram eftir kvöldi. Þá var veðrið orðið slæmt og útlit fyrir að færðin yrði þung svo þau drifu sig tiltölulega snemma niður á Minna-Hof. Það gekk allt saman eftir. Ég var hins vegar dreginn fram úr um miðnættið til að bjarga föstum ferðalöngum af holtinu fyrir framan Móa en þar hafði Guðbjörg í Hamarsholti fest bílinn í einum skaflinum. Við Sigvaldi fórum henni til bjargar og gekk það ágætlega.
Eftir ágætan nætursvefn vaknaði ég svo í morgunn við það að síminn hringdi. Pabbi var á hinum enda línunnar og bað um aðstoð því traktorinn var fastur hjá honum niðri á túnvegi. Ég fór því niðureftir en get sjálfum mér um kennt að hafa ekki verið búinn að kenna honum betur á hann. Það eins sem ég gerði var að setja hann í lágt drif og læsa drifinu og þá reif hann sig upp úr skaflinum. Síðan þurfti ég að moka okkur burt af heiðinni því heimreiðin var full af snjó og nokkrir góðir skaflar lokuðu leiðinni niður að vegamótum.

mánudagur, 12. mars 2007
Nýjar myndir á myndasíðunni
Ég fékk fleiri myndir frá mömmu og setti á myndasíðuna. Það bættust við nokkrar myndir í ágústmöppuna og Hvítasunnumöppuna og síðan bættust við möppur með myndum úr réttunum og saumaklúbbsferðinni hjá mömmu og pabba.
mánudagur, 5. mars 2007
Heilmikið að gerast
Ég talaði við pabba í kvöld. Hann er búinn að vera fyrir austan alla helgina með píparanum. Hann er að sögn þess gamla búinn að standa sig gríðarlega vel. Það er búið að gera við báðar sturturnar og næstum öll blöndunartækin í húsinu. Hann er búinn að laga frárennslið frá pottinum. Hann er búinn að setja ofna í hesthúsið og hann er búinn að tengja brynningartækin í stíurnar. Maðurinn er greinilega hamhleypa til verka og ég skammast mín að segja frá því að ég man ekki hvað hann heitir en hann er góðvinur hans Inga. Þessi maður verður alltaf velkominn á Hamarsheiði II í mínum huga. Annars er ég alltaf að bíða eftir að þið sendið mér myndir til að setja inn á síðuna. Ég læt þig bara fá lykilorðið að þessu Nonni svo þú getir sett þetta inn sjálfur en Guðrún og Gilli og mamma og pabbi geta bara látið mig fá þetta á tölvutæku formi og ég hendi þessu inn. Ég ætla líka að athuga hvort ég get ekki fengið eitthvað af myndum hjá þeim sem voru með okkur í sumar og höfðu myndavél meðferðis.
mánudagur, 19. febrúar 2007
Góð helgi
Við Edda fórum austur seinni partinn á föstudag. Þegar við komum austur var pabbi þar með pípara sem var að taka út ástandið á pípulagnaflækjunni. Hann ætlar líklega að byrja á þessu eftir hálfan mánuð. Eftir matinn dreif ég mig í kjallarann að byrja á hillunum og kláraði þær síðan á sunnudagsmorgunn. Afrakstrurinn má sjá hér. Þegar það var búið reif í hnakkinn minn og önnur reiðtygi í öreindir og bar á það allt nokkrar umferðir af olíu. Síðan komu Íris og Halldór vinir okkar ásamt Naomí Sif dóttir sinni seinni partinn á laugardaginn og við höfðum það notalegt með grill, pottaferð og fleira. Mjög notaleg helgi í alla staði.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)